25janúar

Júbbdídú!



ÉG NÁÐI ÖLLUM ÁFÖNGUM Í AARHUS!!!

tilgangi, eða að einhverju leiti, ferðarinnar er náð! hihi


leiter
25. janúar 2008 klukkan 18:31
Aspasinn
3 athugasemdir
23janúar

örblogg

jæja, langt síðan maður hennti einhverju hér inn.. bara búinn að vera svo upptekinn við að flyta heim, halda uppá jól og áramót, vinna og sýna sig og sjá aðra.. hehe

en allavega, komumst heil heim frá Aarhus, langar nú barasta að fara þangað aftur sem fyrst, en þetta var allavega helvíti skemmtilegur tími þarna úti!!

jólin voru æði gæði, gott að komast heim til mömmu og pabba, góður matur og góður félagsskapur þar á ferð!

kláraði prófin eftir áramótin, og búinn að fá 2 einkunnir, búinn að ná báðum, reyndar með misjöfnum árangri... hehe

byrjaður að vinna í nýju vinnunni, sem er alveg hreint frábært og skemmti ég mér alltaf konunglega með fólkinu sem þar er! enn og aftur æði gæði!

annars bara allt gott að frétta, lítið viðburðaríkt sem ég man eftir í augnablikinu... en það er ábyggilega eitthvað!!

nóg í bili,
bíð spenntur eftir þorrablótinu fyrstu helgina í feb og svo vonandi Ak 29 feb.. verða ekki allir á svæðinu þá??!!!!

leiter

aspasinn
23. janúar 2008 klukkan 14:48
Aspasinn
1 athugasemd
13desember

Fíaskó

jæja, fyrsta prófið í háskóla erlendis lokið... það gekk nú alveg ágætlega.. þó það hafi vissulega tekið sinn tíma! jahérna hér! ef ekki hefði verið fyrir útlendinga-frestinn þá hefði ég aldrei náð að klára, svo ég er þakklátur skólanum fyrir að vera góður við okkur útlendingana!!

þó að prófið sjálft hafi gengið ágætlega, þá gekk nú alls ekki vel að skila því, en það átti að gerast kl 9 nú í morgun... fór uppí skóla, aðeins seinna en ég hafði ætlað mér, en var kominn þangað á nægilega góðum tíma til að ná að prennta út, fjölfalda í nógu mörgum eintökum svo að hvert mannsbarn hér í Aarhus hefði getað lesið yfir skrif mín, og skrifa undir einhverskonar samning um að ég lofa að ég sjálfur hafi klárað prófið, og svo loks skila því í svo til gerðann kassa...

þegar uppí skóla var komið og búinn að finna tölvuverið fór ég að finna fyrir köldum svita, því blessaða talvan vildi ekkert með próf mitt hafa! breytti öllum formöttum sem mér kom til hugar, úr letter yfiri í A4, spásssíðum og ég veit ekki hvað og hvað! þá var kl orðin 08:55, 5 minútur til stefnu... hlóp upp á efstu hæð, þar sem átti að skila, og fann þar einhverja dömu og útskýrði fyrir henni vanda minn, á mjög svo bjagaðri dönsku, og ekki má gleyma stigunum og því var ég mjöög svo andstuttur, en náði þó að stama þessu útur mér!

konan tók sig til og bennti mér að fara lengra upp, held að hún hafi meint að fara bara og tala við guð, því hann veit að ekki voru fleiri hæðir í byggingunni!! en svo benti hún mér líka á að prófa bókasafnið, sem mér fannst mun sniðugri hugmynd, hljóp alla leið niður aftur og búmm... bókasafnið opnar ekki fyrr en kl 9, reyndar 3 mínútum of seint í dag!! þar talaði ég við piparkökuétandi starfskonu og tilkynnti hún mér að prenntarinn á bókasafninu væri ekki til þess að prennta út, allavega ekki verkefni, auk þess sem það væri ekkert word... en þar sem hún vorkenndi mér í öllu þessu, þegar orðinn of seinn og allt það, sagði hún mér að prófa engasíður... talvan sú arna, frá 1993, var nú með nettengingu svo ég ákvað að prófa þetta... og viti menn.. hún prenntaði út mínar síður, og gerði sitt verk vel! og alveg fríkeypis því þessi talva var ekki til þess að prennta út.. svo piparkonan gat ekki tekið við greiðslu..

svo var að fjölfalda.. í stressi mínu þá byrjaði ég á að snúa blöðunum vitlaust... því þetta er svona tekníst, setur öll blöðin niður og allt fer í gegn.. önnur tilraun tókst, en þar sem ég þurft að ljósrita annað eintak, þá fór tilraun 3 í ekki neitt en að lokum þá hafðist það! semsagt, 4 tilraunir til að ljósrita 2 eintök! 50% nýtni! gott mál....

svo var að skirfa undir samninginn... endalausar undirskriftir, dagsetningar, skólanúmer og hvaðeina.. en ég var ekki með penna!! vildi svo heppilega til að það var ung snót að ljósrita og því var bara reddað sér og jújú, eftir smá sannfæringu fékk ég pennann... þá hófust skrifin!

en á endanum þá hafðist þetta, 09:25, aðeins 25 min á eftir áætlun, en þar sem að ég var búinn að ræða við konuna nálægt guði og sagði henni frá þessum vandræðum, þá tók hún brosandi á móti mér! úje!

þá var nú bara málið að kaupa bók fyrir næsta próf... rölti þá yfir í bóksöluna með heitþráðan fyrsta kaffibolla í hönd... nei nei, opnar ekki fyrren tíu, svo það eina sem var í stöðunni var að bíða þetta af sér.. og sem betur fer er veðrið hér í DK mun betra en á klakanum, hér situr allt kjurrt!!
svo sló klukkan 10. rölti inn, fann sálfræðideilina og hver var ekki þar, jú unga snótin sem ég fékk penna hjá svo það var að sjálfsögðu sagt kurteisislegt  2hey". en hvað með það, bókin keypt, meira að segja skólaafsláttur svo mikil gleði þar á ferð, kallinn sagði mér að kaupa mér bjór fyrir afganginn sem ég hef hugsað mér að gera. geng í átt að strætóskýlinu, og nei nei, fæ ég þá ekki svona helvíti skemmtilegt stokkera "þú átt eftir að drepa mig í einhverju húsasundinu" svip frá einmitt ungu snótinni með pennann sem hefur greinilega fundist þessir óvætu hittingar hjá okkur verða orðnir aðeins of margir á aðeins of stuttum tíma... ætlaði varla að þora að fara uppí sama strætó og hún, vegna þess ég vil ekki vera handtekinn svona í lok dvalar minnar hér! en ég komst þó heill á höldnu heim á endanum..

en nú tekur bara við þrifnaður á íbúðinni, lærdómur og svo hugsanlega 1 LOKAdjamm, sem eru nú orðin nokkur hérna hjá okkur... hehe en það er bara svo erfitt að kveðja!
en annars er það bara klakinn eftir 6 daga!! þetta líður alltof hratt!!


kveð í bili, Haffi
13. desember 2007 klukkan 15:09
Aspasinn
7 athugasemdir
29nóvember

SSSSSSSSHHHHHHHHHIIIIIIIIIITTTTTTTTTTTTTTt

og ég endurtek

SSSSSSSSHHHHHHHHHIIIIIIIIIITTTTTTTTTTTTTT

Jú mikið rétt... eftir aðeins 3 vikur, og aðeins minna meira að segja, þá verður maður kominn á klakann!! og hvað þýðir það?? jú ég er að fara í próf eftir rúma viku, en þar sem ég er búinn að hafa það ALLTOF skemmtilegt hér í Aarhus, þá er ég ekki tilbúinn!! hahaha en maður rúllar þessu upp.... Glottandi

Hlakka samt vissulega til að koma heim, en þá langar mig að koma aftur hingað eftir áramótin!! því ekki er maður að hata eitthvað svona!!


ég og Hrefna á Waxies... var eitt sinn meinað aðgang vengna ungs aldurs





Jólaborðið.. besta borðið!!





Ég, Emmi og Marta í erlendu jólamatarparty






Búið að vera samt rosa mikið að gera undanfarið, þó sérstaklega í "julefrokost" veislum.. endalausar matarveislur og maður er nú ekki að hata það! og svo er t.d. nýársfögnuður núna á laugardaginn, en ég held ég láti hann nú vera, lærdómur hljómar mun meira heillandi í augnablikinu... uuuuu..... nei..... en í staðinn fyrir djamm, þá ÆTLA ég að kýkja í heimsókn og spila BUZZ, kana, og borða góðan mat, jú svona eins og mínar heimsóknir snúast yfirleitt um;) haha

fer í próf mánudaginn 10 des... shit hvað það er stutt þangað til!! en þrátt fyrir þetta próf, þá ætla ég að fara í annað jólaboð (eins og þau eru nú mörg), en þetta boð verður svona farvelparty, því þetta verður síðasta skiptið sem að maður sér krakkana... en vonandi bara í bili... þökk sé facebook þá getur maður fylst með liðinu og haft samband og vonandi kýkt í heimsóknir útum allan heim! ekki að hata það!

annars er þetta bara taumlaus gleði...

og já alveg rétt... í dag þá byrjuðum við að pakka... það er aldrei gaman, sérstaklega þegar maður er að flytja frá yndislegu danmörk!! fengum kassa, ætlum að senda þá með póstinum... ég náði 14,5 kg og Sigrún 18,9 kg... mun ódýrara að senda í pósti en að borga yfirvigt... sem er HELL!!! og ekki tými ég að spreða þeim í þess konar vitleysu... þeir fara í annarskonar vitleysu!!!!!

29. nóvember 2007 klukkan 23:45
Aspasinn
10 athugasemdir
22nóvember

styttist í heimferd

jæja, kominn 22 nóvember.. sem þýðir að eftir 1 mánuð, þá verð ég á leiðinni heim á drangsnes, og búinn að eyða nokkrum góðum dögum í höfuðborginni.. .

annars er allt gott að frétta, fór á julefrokost, danskt jólahlaðborð. fékk önd, sykraðar kartöflur og helvíti góða sósu.. borðaði ekki restina af meðlæti þar sem það var rauðkál og súr/sætar gúrkur, niðursoðnar... hahaha
en svo var bara góður félagskapur og mikil gleði, en svo þegar líða fór á kveldið og DJinn fór að spila fór gleðin dvínandi, því teknómixuð jólalög voru honum að skapi.. ekki mér!! hræðilegt alveg!! og er ég mikið glaður að fá staðfestingu á því að bestu vinir mínir hérna og ég, erum klárlega skemmtilegasta og hressasta fólkið á svæðinu, allavega ef að maður miðar við stemmningu á borðunum!!! hahaha

og úff.. síðasta föstudagskveld var matur uppí kollegíi, helvíti fín blanda af ítölsku, grísku og einhverjur fleiru gúrme!! jamm jamm!! en með þessu öllu fylgdi óhemju magn af rauðvíni, vodka, gini og rom!! enga að síður var þetta kveld helvíti gott, en laugardagurinn var ekki jafn hress!! shit!! var svo vakinn um 3 leitið til að leggja af stað í fjölskyldudaginn mikla, fórum í den gamle by, helvíti skemmtilegt og soldil jólastemmning bara!! '
en svo var farið heim til hrefnu og alla og sigrún eldaði líka þennann dýrindis jólamat, hamborgarahryggur og sósa og sykraðar kartöflur!! jamm jamm... en þar sem heilsan var ekki sem best, þó át ég eins og þetta væri síðasta máltíðin!! EN svo eftir matinn, lagðist ég uppí sófa og sofnaði!! hahaha hinir fengu að taka til, því eldhúsið var eins og eftir sprengingu!! haha

svo var tekið í spil og eftir 1 juleöl eða tvo var maður orðinn hress aftur!!

en svo má ekki gleyma stóru fréttunum!!! Guðrún mín í mexíkó og Javier eru búin að eignast lítinn gutta! hann Paulo Mercado litla

nú fer manni bara að langa í eitt stykki krýli!! en það verður að bíða betri tíma, þau eru orðin svo mörg að maður getur farið í heimsókn eða fengið að láni;) hahaha
en svo er það bara á stefnuskrá að skella sér til mexíkó í heimsókn!! Það þýðir ekkert annað...

svo er hún ólöf að fara að koma í óvænta heimsókn á þriðjudaginn!! ekkert smá spenntur að hitta hana/þig ef þú lest þetta!!hehe

en komið gott í bili...
hilsen
Haffi
22. nóvember 2007 klukkan 15:05
Aspasinn
4 athugasemdir
13nóvember

slappur í þessu!

jahérna hér!
langt síðan maður bloggaði hérna! en þetta er allt að koma! haha
freyja systir og tommi voru í heimsókn um helgina, ljómandi gott að fá þau í heimsókn, og myndi ég nú segja að það hafi bara verið afslappelsi hjá okkur.... eða svo gott... haha reyndar þegar þau komu þá upplýstu þau okkur um það að þau færu á sunnudagsmorgni en ekki mánudags sem ég var búinn að ákveða... svo allt fór í rugl! haha

fyrir utan að þau versluðu eins og mófó þá gerðum við hitt og þetta skemmtilegt. fórum t.d. á karióki bar á fimtudeginum, sungum ekki reyndar en enga að síður góð skemmtun að horfa á liðið! haha svo á föstudagskveldið fórum við 3 á Fedde le grand, dj, og var það helvíti gaman, þó að hjúin hafi nú farið frekar snemma heim, en ég fékk að vera lengur... skil ekkert í þessu unga liði nú til dags! haha

ég, tommi og freyja á fedde


en laugardagurinn var alveg hreint alltof þunnur! fórum nú út að versla og skelltum okkur svo uppí íþróttaskóla en sigrún var að keppa, og að djö var það gaman! sigrún að berja konu og aðra í smettið!! hörð í vörninni maður!! úje!!

en laugardagskveldið einkennist af leti fyrir framan tv, þau áttu lest fyrir 7 morgunin eftir, svo ekki mikið farið út það kveldið.. allir eins og hrúgald ýmist uppí sofa eða á vindsænginni ógurlegu!

svo þegar við vöknuðum á sunnudaginn, tommi og freyja búin að yfirgefa okkur, þá hringdi Hrefna og sagði okkur að drulla okkur til sín því það átti að vera kósýdagur og étið! ávalt gaman að fara í heimsókn uppá rosenvangsalle! uummmm
svo eins og vanalega var það kani! sem að ég rústaði!!!! úje!!

en framundan er bæði lestur og gleði!

t.d. núna á fimmtudaginn er ég að fara á "speeddate" kveld í stúdentahúsinu! held að það eigi eftir að verða mjög fyndið!! ákvað að taka smá flipp með henni lísu (kanada)! svo bara ódýr bjór og gleði eftir það!;) hahaha

og á föstudaginn er bobbi!! búið að bjóða mér í þetta líka fína matarboð uppí sveit (skjoldhoj, kollegi) sem ég býst nú reyndar við að ég muni fara í, og svo er mugison að spila og held að það gæti verið hörku stuð líka! en svona er þetta!! velja og hafna.. erfitt líf! haha

og svo á þriðjudaginn, já ÞRIÐJUDAGINN, þá er jólafest fyrir skiptinemana, jólaönd, jólabjór, jólaís og jólasveinn, og jólapakkar og ég veit ekki hvað og hvað. allir að mæta í sínu fínasta pússi! það verður ábyggilega mjög gaman, nema hvað að þetta er á ÞRIÐJUDEGI!!! Á ekki til orð!!!

svo er hún GV mín sett í dag!!! þetta er svo fljótt að líða! jáhérna hér! ætla rétt að vona að maður fái fréttir um leið og guttinn kemur í heiminn, litli javierson! og svo má hún líka alveg fara að henda inn fleiri myndum!!!! hahaha vona að þú lest þetta;)

svo eru líka fleiri að eiga afmæli og eiga börn, beta fyrrum nágranni minn og yndiskona er komin yfir sína dagsetningu! Sigrún e átti afmæli í gær og GH á afmæli á morgun! og væri það nú ekki leiðinlegt ef að GV myndi nú koma með litla kútinn þá, veit að GH yrði ánægð!! haha

en jæja, komið gott af þessu í bili, kem vonandi með skemmtilegt blogg innan tíðar!

heyrumst síðar

Haffi
13. nóvember 2007 klukkan 14:43
Aspasinn
6 athugasemdir
19október

blabla.. betri en perfect amier!

jæja tilvalið að blogga núna, kl að ganga hálf 2.. og maður er ekki einhverstaðar að dansa af sér rassinn niðrí bæ.. vorum að koma heim af spiladjammi hjá hrefnu og alla, það klikkar náttúrlega aldrei! úff hvað það er alltaf gaman hjá okkur.. erum nánast búin að búa hjá þeim s.l. 2 vikur... alltaf matur, svæfa tanju, og svo spil til 21:50.. þá heim með strætó, það  býr víst vinnandi fólk á því heimili.. en í kveld, festudagskveld, fengum við að vera lengur;  ) hehe

en síðustu helgi fórum við til köben, berglind og kalli kýktu í menninguna og að sjálfsögðu létum við þau ekki fram hjá okkur fara! fórum í tóvolí!!!! og ég og begga fórum í RÓLUNA!!! já! geri aðrir betur! mæli með því að þið gúglið hana og sjáið hvað við gengum í gegnum! úff ! héldum á tímabil að þetta væri okkar síðasta! en enga að sí8ður eitt það brjálaðasta sem ég hef gert! 80 metra uppí loftinu og það eina sem hélt mér voru lélegar keðjur og bílbelti! úff ! snúast í kringum staur! Já ! ég hélt ég myndi deyja!

og að örðu! (og já fór í carlsbergverksmiðjuna... mæli með því! )

var í bruns gallery (verslunarmiðstöð) í dag í konubúð með sigrúnu.. stóð fyrir utan mátunarklefann að bíða meðan sigrún mátaði kjól, kom þá ekki einhver stúlka og klappaði á mér hendina.. labbaði aðeins lengra og sá að ég var ekki einhver helvítis gína! neinei.. hélt hún þá ekki að ég væri einhver uppstilling í búðinni og fannst ullarpeysan sem amma og afi prjónuðu handa mér svona líka helvíti flott! haha vissi ekki hvert stelpan ætlaði þegar hún sá að ég andaði! hahaha

en enga að síður þá er ég sibbinn, er að fara í innflutningspary á morgun...

bið að heylsa í bili og vona að mamma og pabbi hafa það gott í parís.. þar sem ég var nú fyrir alls ekki svo löngu.. hahaha

hilsen
19. október 2007 klukkan 23:27
Aspasinn
12 athugasemdir
05október

hellú

jæja, þá er maður kominn heim úr interrailinu góða! hef eiginlega ekki tíma í að blogga náið um það, en við fórum til amsterdam, stutt stopp í belgíu, þaðan til París, þaðan til Róm, svo stutt stopp í Berlín og svo heim aftur!
úff hvað þetta var gaman og mig langar að gera þetta aftur, nema vera lengur en 6 daga!!!

en allavega þá er próftaflan mín komin á hreint!
soldill munur frá háskólanum á akureyri..... sérstaklega líkar mér betur við símatskerfið sem er í HA og maður er ekki í prófum í jólafríinu!
fer í 3 próf, öll heimapróf, sem ég er reyndar ánægður með, og þau eru öll 27 tímar.
fer 11-12 des, 17-18 des (bæ ðö vei þá eru þetta mánudagar sem prófin byrja svo djamm á milli prófa er eiginlega útúr myndinni) og svo 2-3 JANÚAR!!!!! hvað í anskotanum er málið með það!?? halda danir ekki uppá áramót með tilheyrandi drykkju og þynnku í kjölfarið!!??!?! nei, ég skil ekkert í þessu!

en allavega, þá lennti ég í frekar vandræðalegu augnabliki áðan, var að labba útí sjoppu áðan, sem er í 3 min fjarlægð frá byggingunni minni... gott mál með það..

fyrir utan það að á milli húsa eru einhverskonar glerveggir, sem er annaðhvort til skrauts eða til að minnka vind, eða jafnvel bæði... já, ég labbaði og sá svo að þaðvar hlið á milli tveggja húsa, flott þar sá ég glufu til að stitta mér leið... ég aska mér áfram eins og ég hafi aldrei gert neitt annað með iPodinn í botni og dilla mér eins og mér einum er lagið...
BÚBP!!!
labbaði ég ekki beint á helvítis glerið og skallaði það frekar harkalega! soldið vankaðurr, leit í kringum mig, held að enginn hafi séð það, svo ég glaður!

en allavega, nú á ég að vera að lesa, en nenni því ekki... og svo er ég að bíða eftir að kl slái 14:15 því þá byrjar fredagsbar, og ég er búinn að vera í skólanum í mánuð, og hfe ekki farið á 1 stykki! skil ekkert í mér!!!

en allavega
leiter
05. október 2007 klukkan 10:02
Aspasinn
6 athugasemdir
24september

kalt á íslandi?

halló

Langaði bara að láta ykkur vita, að ég er að fara að leggja af stað til Amsterdam eftir 40 minútur...
svo til París, Róm og svo aldrei að vita,,

góða skemmtun í rokinu á Íslandi!!!!

muhahahaha
24. september 2007 klukkan 14:19
Aspasinn
5 athugasemdir
21september

VÍSIR.IS

Jæja, ef einhver hefur lesið vísir.is þá hefur sá hinn sami lesið þessa frétt og jú,

þetta erum við sigrún

takk fyrir takk

lögreglan í köben er ekki sú kurteisasta!!

kveðjur úr kóngsins köben
Haffi
21. september 2007 klukkan 18:04
Aspasinn
6 athugasemdir

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Aspasinn
  • Staður: Aarhus
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Nemi, Aarhus Universitet
  • Um mig: sálfræðinemi í Aarhus universitet, verð hér fram að jólum, en fer svo að vinna.. aftur í HA í haust.. danska númerið: 045-50450511

Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leikur dagsins